Frá stofnun láshússins hefur mesta áherslan verið lögð á lyklakerfi og þjónustu á þeim.
Við bæði hönnum og smíðum ný kerfi og þjónustum eldri lyklakerfi, veitum ráðleggingar og bjóðum upp á uppsettningu ef þess er þörf.
EVVA er leiðandi framleiðandi fyrir vélræn og rafræn lásakerfi í Evrópu

Dæmi um lyklakerfi í fjölbýlishúsi:
- 10 íbúðir
- 10 geymslur
- 4 hurðar í sameign
Hver og einn fær lylil sem gengur að Íbúð, Geymslu og Sameign en sá lykill opnar eingöngu þær hurðar sem hver og einn hefur aðgengi að .
Eins er hægt að gera fyrir fyrirtæki með mun meiri aðgangsstýringu þar.

Með því að útbúa lyklakerfi er hægt að fækka lyklum og auka öryggi til muna þar sem eigandi eða umsjónamaður kerfisins getur haft miklu meiri yfirsýn yfir hverjir hafa aðgang að hverri hurð og hversu mikið af lyklum eru í umferð. Mismunandi er eftri kerfum hvernin úttekt á lyklum er háttað en algengast er að í hverju kerfi fyrir sig eru skráðir ábyrgðarmenn og þeir einir hafa heimild til þess að taka út nýja lykla.
Einnig er hægt að fara framm á að allir smíðaðir lyklar inn í kerfið séu raðmerktir svo enn auðveldara sé að fylgjast með hverjir eru með lykla með því að skrá niður hvert raðnúmer fyrir sig á þann einstakling sem fær afhentan lykil úr kerfinu.
Hafðu samband og við munum gera okkar besta í að aðstoða þig við hvernig best sé að setja upp nýja kerfið þitt.